Til baka

Hringjum í fortíðina, endurlífgun gamals síma frá 1940

2026-04-06
eftir Andri Ólafsson
IoTPythonRaspberry PiVélbúnaðarfiktLinuxMekatróník

Eftir Andra Ólafsson

Hér er yfirferð á nokkurra ára vegferð minni og afa í að endurvekja gamlan síma sem var fyrst tekinn í notkun í kringum árið 1940. Síminn var staðsettur á heimili afa míns, Dvergasteini á Reyðarfirði, símanúmerið var 52.

Í þessu litla húsi bjuggu margir fjölskyldumeðlimir, yfir árin hafa mörg orð flætt í gegn um símtólið bæði gleðiefni og sorgarfregnir. Hér eru fjölskyldumeðlimir sem bjuggu í Dvergasteini.

Vigfús Jónsson (langalangafi)13. júlí 1873 - 25. júlí 1953
María Þorgrímsdóttir (langalangamma)11. ágúst 1873 - 17. mars 1963
Valgerður Vigfúsdóttir (langaamma)7. apríl 1898 - 21. jan. 1954
Ólafur Sigurjónsson (langafi)31. júlí 1896 - 2. nóv. 1980
Vigfús Ólafsson (afi)11. júní 1938
Sigrún Guðnadóttir (amma)15. júlí 1935 - 22. jan. 2012
Ólafur Vigfússon (pabbi)24. ágúst 1959
Guðni Vigfússon29. sept. 1961 - 21. mars 1962
María Þuríður Ólafsdóttir (systir afa)10. júlí 1923 - 14. des. 2004
Til að spara pláss, þá var stiginn upp á aðra hæð aðeins brattari en gengur og gerist
Til að spara pláss, þá var stiginn upp á aðra hæð aðeins brattari en gengur og gerist

Þegar Vigfús Ólafsson flutti úr Dvergasteini var síminn tekinn með, þó nýtt símkerfi hafði tekið við. Það er oft hægt að nýta hluti í eitthvað nýtt og skemmtilegt. Ég erfi þennan hugsunarhátt frá afa.

Western Electric Company síminn er persónulegur hluti af fjölskyldusögunni. María systir afa var talsímavörður, tengdi símtöl handvirkt fyrir samfélagið. Afi bað mig um að hjálpa sér við að nýta símann í eitthvað skemmtilegt, það sem byrjaði sem hugmyndavinna fyrir þónokkrum árum og loksins er þetta orðið að veruleika.

Þegar símtólinu er lyft að eyra heyrist upptaka þar sem Valgerður systir pabba míns segir sögu símans. Við það að snúa upprunalegu sveifinni þá hringir síminn nákvæmlega eins og hann gerði fyrir hartnær áttatíu árum.

1
1
1
1
1
1

1. Fyrsta útgáfan: Vandræði með Arduino og C++

Áður en ég endaði á lokahönnuninni með Raspberry pi þá byrjaði ég verkefnið með Arduino örtölvu (e. microcontroller) parað með MP3 módúl. Ég tengdi hátalara, arduino og mp3 módúl við prótótýpu bretti og spilaði test hljóðbút þegar maður ýtti á hnapp. Lét ljós blikka þegar tólið var tekið upp. Arduino umhverfið varð hins vegar fljótt að stórum þröskuldi. Þetta var fyrir tíð gervigreindarmódela sem forrita allt fyrir mann. Ég var farinn að kljást við of margar torskildar C++ villur, árekstra á milli forritasafna og vandamál með minnisstjórnun. Það þurfti að huga að mörgu við þetta verkefni, tímanum var ekki vel varið í baráttu við forritunarmál sem ég var ekki vanur. Ég átti raspberry pi sem ég hafði keypt nokkrum árum áður.

Arduino og allt vírað saman
Arduino og allt vírað saman

Ég þurfti því að meta kosti og galla þessara aðferða :

  • Kostir Arduino: Ekkert latency, ekkert stýrikerfi, mjög áreiðanlegt.
  • Gallar Arduino: Erfið hljóðvinnsla, mjög þreytandi C++ villuleit fyrir þetta tiltekna verkefni.
  • Kostir Raspberry Pi: Python gerir hljóðvinnslu og GPIO rökfræði ótrúlega einfalda.
  • Gallar Raspberry Pi: Lengri ræsitími, meiri líkur á að eitthvað klikki í stýrikerfinu.

Einfaldleikinn sigraði og ég ákvað að skipta um stefnu.


2. Íhlutirnir og fyrsta ítrun.

Nýi heilinn í verkefninu varð 2011 Raspberry Pi Model B (Revision 1) því fylgdu sínar eigin „fornlegu“ áskoranir.

Bjöllurnar

Þessi sími er með raunverulega bjöllu, ekkert digital dót. Símkerfið var á 90-100V og spennunni var víxlað til að breyta segulsviðinu á spólunum. Við umpóleringu á segulsviðinu þá sveiflast hamarinn til og slær í bjöllurnar. Í gamla daga var sveifin snúið og "Magnetron" framleiddi merki sem gaf merki til talsímavarðar (Stutt langt ...?).

1
1
1
1

Það var ákveðin áskorun að finna leið til að búa til 90V AC merki fyrir bjölluna, ég googlaði frá mér allt vit. Ég leitaði að DC spennum sem gátu framleitt circa svona háa spennu og ætlaði að nýta H-brú til að búa til hringi merkið.

Ég fann ekkert nógu nett til þess að passa inn í símann og vildi ekki búa til auka box fyrir utan símann. Ég rakst á Silvertel AG1171 módúl hjá raf-íhluta-sölusíðunni mouser, þetta er mjög smár módúll sem framleiðir 90V ac merki fyrir símhringingu. Það er einnig hægt að nýta þennan módúl í að búa til sitt eigi local símkerfi, einn módúll í hvern síma.

Silvertel einingin, notuð til að búa til 90V AC hringimerkið.
Silvertel einingin, notuð til að búa til 90V AC hringimerkið.
Önnur nærmynd af Silvertel AG1171 SLIC einingunni.
Önnur nærmynd af Silvertel AG1171 SLIC einingunni.

Í stað þess að nota handsveifina sem var notuð til að hringja inn í símstöð þá tengdi ég tvær snertur á henni til að nema hvenær notandi byrjaði að snúa sveifinni. Við það byrjar síminn að hringja. Snerturnar voru tengdar við GPiO með pull down resistor og gefur AG1171 merki um að gefa frá sér 20Hz hringitakt við 90V.

Hljóðtengingin

Ég klippti jack snúru af eldri heyrnatólum, tengdi jack í Raspberry Pi og hinn endann í upprunalega hátalarann í símtólinu, það heyrist svona fullkominn "crackling" effect í þessum eldgamla hátalara.

Þetta var fyrsta útgáfa af raspberry pi, erfitt að nálgast box utan um tölvuna þannig að ég 3d prentaði slíkt.
Þetta var fyrsta útgáfa af raspberry pi, erfitt að nálgast box utan um tölvuna þannig að ég 3d prentaði slíkt.

3. Kóðinn í einföldu máli

Python kóðinn var á tímabili um ~400 línur í fyrstu ítrun, ég endurskrifaði föll og einfaldaði virkni. Lokaútgáfan endaði í um ~200 línum. Nýti threading til að fylgjast með öllum GPIO pinnum. Svo er ég með pygame.mixer til þess að spila mp3 (hafði áður reynt að nota "alsa", "python-vlc" og "simpleaudio" með misgóðum árangri). Helstu eventarnir eru ef

  • Símtóli lyft (e. Off-Hook): Þegar símtólinu er lyft stöðvar kóðinn hringingu, bíður í 500 milli sek (c.a. tími sem tekur að færa tólið að eyranu) og spilar hljóðskrána.
  • Sveifin (e. Magneto Trigger): Ef símtólið hvílir á símanum og sveifinni er snúið, fer af stað bakgrunnsþráður sem kveikir á ring_loop og róterar (Forward/Reverse) pinnum AG1171 á 20Hz til að umpóla segulsviði á spólunum, við það lemst hamarinn í bjöllurnar.

4. "Lessons learned"

Ég er með Raspberry Pi revision 1, útgáfa tvö kom út 6 mánuðum seinna. Báðar tölvurnar voru seldar sem "Raspberry Pi Model B". Það olli smá vandræðum þar sem ég var að studdist við Revision 2a "pinout". Það voru nokkrar breytingar á tengingum (pinna 21 breytt í 27). Það fóru nokkrar klukkustundir í að finna út úr því afhverju ekkert gerðist þegar sveifinni á símanum var snúið. Í bilanaleit þá einfaldaði ég kóðann til að testa þetta eina tilfelli, tengdi hnapp við pinna 27 og ekkert gerðist, sem benti til þess að það var önnur orsök á bakvið þetta. Best að kíkja á nákvæma spekka, finna serial númer á græjunum þegar maður leitar að pinout.

  • „Sneakernet“ vinnuflæðið: Þar sem þessi Pi frá 2011 var ekki með Wi-Fi og ég hef ekki verið með ethernet tengi á ferðatölvunni í þónokkur ár. Ég kaus að færa kóðann á milli með usb og mounta á stýrikerfið þegar ég var að prófa nýjan kóða. Eftir að ég var búinn að víra allt saman setti ég símann hliðina á routernum og tengdi. Eftir á hyggja hefði ég átt að kaupa nýja útgáfu með wifi á ~15-20 þúsund. Tímasparnaðurinn hefði verið fljótur að borga sig.
  • Hljóðspilunin: Stundum kom ekkert hljóð úr símtólinu né heyrnatólum sem ég tengdi við jack tengið. Ef HDMI snúra var tengd við tölvuna þá var það sjálfgefið hljóðúttak. Það þarf að force-a default stillinguna í bios.
  • Spennufallið: Ég gaf hringimerkjakerfinu upprunalega rafmagn beint frá 5V járnbrautinni á Pi tölvunni. Straumnotkunin í miðjum 90V hringitakti olli miklu spennufalli að það corrupte-aði SD-kortið, ég var með kóðann á GIT en þurfti að setja stýrikerfið upp á nýtt. Það er einfalt að taka snapshot af svona litlum stýrikerfum, það hefði sparað smá tíma að eiga tilbúið image.
  • Noise í snertunum: Gömlu 80 ára "blade switch" inni í símanum gáfu af sér mikið skopp (e. bouncy). Ég þurfti að innleiða 200ms debounce í Python til að koma í veg fyrir að frásögnin byrjaði upp á nýtt í hvert sinn sem símtólið hreyfðist til í vöggunni.
  • **Systemd : ** Ég setti upp systemd þjónustu til að keyra upp python skránna, um leið og RPi fær straum þá kviknar á tölvunni og hún ræsir forritið og byrjar að monitora snerturnar.

5. Sjálfvirkni og lokaslípunin

Lokaafraksturinn: Afi að hlusta á fullbúna tímahylkið.
Lokaafraksturinn: Afi að hlusta á fullbúna tímahylkið.

Eftir margra ára fikt, villuleit og bið, fann ég fyrir miklum létti við að ljúka þessu loksins og fylltist ánægju við að rétta afa símtólið. Verkefninu er lokið og saga Dvergasteins er örugg á línunni.